Agnar Jón Egilsson

Agnar Jón Egilsson, leikari og leikstjóri, MA í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst.

Aggi hefur leikið fjölda hlutverka og leikstýrt fjölda verka fyrir leikhús og sjónvarp. Agnar Jón hefur unnið mikið við kennslu og rekur Leynileikhúsið sem er leiklistarskóli fyrir börn og unglinga. Hann starfar einnig sem leiklistarkennari við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Aggi stendur í þeirri meiningu að með trú á sjálfan sig gæti hver menneskja leitt úr læðingi sína innri ofurkrafta og með því séu henni allir vegir færir. 

Agnar Jón kennir:

Frumefli
Spunatækni