Frumefli

Frumefli 1 og 2

Á námskeiðinu verður tekist á við frumkraftinn sem í okkur býr. Hvaðan kemur hann? Hvað er það sem drífur okkur áfram? Hvernig tengjumst við sjálfum okkur og öðrum?

Í gegnum ýmsar samskiptaleiðir, leiki og spuna tengjumst við okkur sjálfum og hvert öðru og setjum okkur leikreglur fyrir samveruna sem er framundan.

Agnar Jón Egilsson
leikari og leikstjóri, MA í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst

Aggi hefur leikið fjölda hlutverka og leikstýrt fjölda verka fyrir leikhús og sjónvaarp. Hann hefur unnið mikið við kennslu og rekur Leynileikhúsið sem er leiklistarskóli fyrir börn og unglinga. Hann starfar einnig sem leiklistarkennari við Fjölbrautarskólann í Garðabæ. Aggi trúir því að innst í kjarna hverrar manneskju sé ofurkraftur sem býður síns tíma.