náttúruljósmyndun

Náttúruljósmyndun

Á námskeiðinu sameinum við ljósmyndun og útivist og fáum innsýn í þau tæknilegu og listrænu atriði sem huga þarf að þegar taka á ljósmyndir í stórbrotinni náttúru Önundarfjarðar og nágrennis.

Nemendur læra um mismunandi atriði tengd þeim tækjabúnaði og aðferðum sem beitt er við ljósmyndun, hvort sem er um hefðbundnar myndavélar eða myndavélar í símum að ræða og læra að nýta sér þá tækni og fídusa sem nota má hverju sinni. Nemendur fá einnig kennslu og þjálfun í grunntækni í myndvinnslu og í þvi hvernig miðla má myndefni með árangursríkum hætti.

Verkefni og vettvangsferðir í náttúrunni leika stórt hlutverk á námskeiðinu.

Ágúst G. Atlason
ljósmyndari, margmiðlunarhönnuður og hreinræktaður Vestfirðingur

Ljósmyndun er atvinna og aðal áhugamál Gústa, en hann hefur ferðast mikið um Vestfirði og tekið ógrynni af myndum af fallegri náttúru. Gústi stundar sitt lítið af hverju í mótorsporti og tvinnar gjarnan saman útiveru og ljósmyndun. Gústi notar snjósleða óspart til að ná ljósmyndum af hæstu tindum.